Kvenréttindadagurinn verður haldin hátíðlegur í dag með því að safnast verður saman í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan fjögur.
Gengið verður fylktu liði frá Ráðhúsi Reykjavíkur að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttir í Hólavallakirkjugarði. Lagður verður blómsveigur að leiði baráttukonunnar Bríetar frá Reykvíkingum . Einnig verða flutt tónlistaratriðið og stutt ávarp.
Að athöfn lokinni verður gengið að Hallveigarstöðum þar sem Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagssambandið bjóða til kaffisamsætis frá klukkan fimm. Allir eru velkomnir að taka þátt í athöfninni.