Krónu bræðingur framleiddur við óheilnæmar aðstæður

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni: Innköllun frá neytendum á Krónu bræðingi ostlíki.

Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar um að í eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands hafi komið í ljós að Krónu bræðingur var framleiddur við óheilnæmar aðstæður.  Er því ljóst að varan uppfyllir ekki kröfur um öryggi matvæla og skal því innkölluð af markaði og frá neytendum.  Samkvæmt upplýsingum frá Kaupási ehf. er varan ekki lengur í sölu í verslunum Krónunnar.

Vörumerki: Krónan.

Vöruheiti: Bræðingur.

Strikanúmer: 2700000955536.

Nettóþyngd: 500 kg.

Framleiðandi: Varan var framleidd í Hveragerði en er merkt FS Dreifingu í Garðabæ.

Geymsluskilyrði: Kælivara.

Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um neyta hennar ekki og farga.