Krían komin á Tjörnina og kirsuberjatrén blómstra

Umhverfi

""

Krían kom um helgina á varpstöðvar sínar í vesturenda Tjarnarinnar. Þessi hávaðasami vorboði sveimar yfir hólmanum og er tekinn til við að undirbúa varpið með tilheyrandi gargi.

Í trjálundi við vesturenda Tjarnarinnar voru vorið 2011 gróðursett fimmtíu kirsuberjatré til vitnis um vináttu Japana og Íslendinga. Þau eru nú farin að blómstra bleikum blómum þrátt fyrir kalt vor þannig að enginn ætti lengur að velkjast í vafa um að "heimur hlýnar". 

Ástarlíf fuglanna blómstrar líkt og kirsuberjatrén og eru andapörin farin að huga að hreiðurgerð. Rétt er að minna á að bannað er að gefa öndunum brauð yfir varptímann, því sílamáfurinn er líka mættur á Tjörnina. Brauðgjafir laða varginn að en máfarnir eru líka sólgnir í litla unga sem fara brátt að klekjast úr eggjum við Tjörnina.