Kraftur, snerpa og taktur við setningu Barnamenningarhátíðar

Börnin réðu ríkjum í Hörpu í dag þegar Barnamenningarhátíð var sett. Þau mættu prúðbúin til leiks og sungu, léku og dönsuðu sjálfum sér og öðrum til ómældrar skemmtunar.

Tíu ára börn úr 4. bekk, alls 1.300 börn, troðfylltu Eldborgarsalinn á opnunarhátíðinni og frumfluttu saman tónverk sem tónskáldið Áki Ásgeirsson hafði samið þar sem reyndi bæði á gott tóneyra, snerpu, raddstyrk og takt. Verkið sem heitir 268° sækir innblástur sinn í tölvuleikjamenninguna og réðist flutningurinn af klæðnaði barnana. Má með sanni segja að flutningurinn hafi tekist vel og að sérhver flytjandi hafi skilað sínu með sóma. Þegar Páll Óskar poppstjarna steig á svið tók svo við trylltur dans og söngur svo undirtók í höllinni. 

Klukkan 13.00 áttu börn úr tuttugu leikskólum í borginni stóra sviðið í Eldborg þar sem þau fluttu lög eftir Atla Heimi Sveinsson, m.a. frumfluttu þau fjögur ný lög sem hann hefur gert við texta Þórarins Eldjárns úr bók þeirra Eddu Heiðrúnar Bachman Vaknaðu Sölvi.

Unglingamenningin tók svo völdin í Hörpu síðdegis þegar krakkar af frístundaheimilum Kamps flyuttu verk úr tónlistarsmiðjunni Tónheimilinu. Þar verður Upptakturinn veittur, en það eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna.  

Kl. 18.00 hefjast barnatónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins og skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts og unglingar slá botninn í dagskrána fyrsta dag Barnamenningarhátíðar með Stórtónleikum í Norðurljósasalnum kl. 20.00.

Kynnið ykkur metnaðarfulla dagskrá Barnamenningarhátíðar á www.barnamenningarhatid.is.