Kraftur á kassabílarallý á Ingólfstorgi

Hátt í sex hundruð börn úr Vesturbæ létu ekki rigningu á sig fá og mættu galvösk til leiks í kassabílarallýi klædd í litríka búninga. Frístundaheimilin í Vesturbæ einkenndu sig með fánum og litum og hófu dagskrána á því að ganga fylktu liði frá Hallgrímskirkju og niður á Ingólfstorg. 



Á torginu fengu börnin sér hressingu áður en keppnin hófst en keppt var í stúlknaflokki og drengjaflokki allra bekkjarstiga á frístundaheimilunum á fagurlega skreyttum kassabílum sem börnin hafa smíðað. Mikil keppnisgleði ríkti á Ingólfstorgi og hvöttu börnin sín lið óspart áfram svo ómaði um göturnar.

Í kassabílarallýi eru allir sigurvegarar og voru veitt verðlaun í ýmsum flokkum, svo sem fyrir flottasta bílinn, besta stuðningsliðið og hraðskreiðasta bílinn, svo eitthvað sé nefnt. Allir fóru því heim kátir efitr keppnina. 

Að lokinni keppni leiddi veðurguðinn Ingó fjöldasöng og skemmti börnunum.