Kjarvalsstofa í París er stúdíóíbúð með vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts er rekur stofuna og miðast við kostnað af rekstri hennar. Úthlutun er tveir mánuðir í senn en skv. reglum um Kjarvalsstofu er stjórnarnefnd ekki heimilt að úthluta íbúðinni í skemmri tíma en tvo mánuði. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn.
Ætlast er til að dvalargestir skili inn stuttri greinargerð til Stjórnar Kjarvalsstofu þar sem fram komi lýsing á unnu verkefni og afrakstri dvalarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2013.