Kíton konur í Viðey 19. júní, kvenréttindadaginn

Mannlíf Menning og listir

""

Tónafljóðin Ragnheiður Gröndal, Védís Hervör, Lára Rúnars, Hafdís Huld, Ísabella Leifsdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir og Gréta Salóme Stefánsdóttir, sem allar eru KÍTÓN konur, munu stíga á stokk í Viðeyjarstofu á kvenréttindadaginn sjálfan. Þær hafa kokkað upp samsuðu verka eftir meðal annars hver aðra, sem þær munu flytja fyrir tónleikagesti.

Kvöldið hefst kl. 19:30 á skynvíkkandi fordrykk að nafni KÍTÓNS-kraftur en hann heitir í höfuðið á hinu nýstofnaða félagi kvenna í tónlist KÍTÓN. Upphitari kvöldsins er Andrea Jónsdóttir skífuþeytari.

Miðaverð er 2.700 krónur og ferjan er innifalin. Miðasala fer fram á midi.is

Ferjan siglir frá Skarfabakka kl. 19:15 og til baka að tónleikum loknum

Nánar á Videy.com