Þrír af efnilegustu skákmönnum Kínverja heimsóttu Rimaskóla á dögunum og tefldu þar við Norðurlandameistara grunnskóla.
Efnt var til hraðskákmóts í hátíðarsal skólans með þátttöku Norðurlandameistara Rimaskóla, þeirra Dags Ragnarssonar, Jóns Trausta Harðarsonar, Olivers Arons Jóhannessonar og Nansýjar Davíðsdóttur. Bekkjarsystkinum Norðurlandameistaranna var boðið að horfa á mótið sem reyndist hörkuspennandi.
Íslensku Norðurlandameistararnir sýndu kínversku skáksnillingunum enga miskunn. Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands lék 1. leikinn fyrir Tan Zhongyi sem varð heimsmeistari stúlkna á árunum 2000 – 2002. Eftir 5 . og síðustu umferð mótsins reyndist Yu Yangyi, sem í dag er 3. sterkasti skákmaður Kínverja, sigurvegari mótsins en þau Dagur Ragnarsson og heimsmeistarinn fyrrverandi Zhongyi urðu í 2. - 3. sæti, hálfum vinning á eftir Yangyi. Þau gerðu innbyrðis jafntefli.
Geta má þess að Oliver Aron sem er í 9. bekk Rimaskóla vann eitt kínverska undrabarnið nokkuð örugglega og hlaut að launum mikið lófaklapp frá skólafélögum sínum. (HÁ)