Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Kaupás ehf. innkallar af markaði First Price lasagne í varúðarskyni.
Kaupás ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði erlent lasagne í varúðarskyni þar sem að varan getur mögulega innihaldið hrossakjöt, sem ekki er tilgreint í innihaldslýsingu.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem verið er að innkalla:
Vörumerki: First Price.
Vöruheiti: Lasagne.
Geymsluskilyrði: Frystivara.
Strikanúmer: 5701410046668.
Nettóþyngd: 1 kg.
Dreifing: Verslanir Kaupáss ehf. um land allt (Krónan, Nóatún, Kjarval).
Kaupás ehf. biður þá sem keypt hafa umrædda vöru og eiga hana heima hjá sér að skila henni til þeirrar verslunar sem hún var keypt og geta þeir fengið hana bætta sé þess óskað.