Í leikskólum grunnskólum og frístundamiðstöðvum er fylgst grannt með evrópsku söngvakeppninni og framlagi Íslendinga þetta árið. Ég á líf var sungið í morgunsöng í Laugarnesskóla og Júróvísion partý er í uppsiglingun í Dalskóla. Þá verður Júróvision haldið í Selinu í Frostheimum í dag og ætla nokkrir krakkar að stíga á stokk og taka góða smelli úr keppninni. Þeir hafa verið að æfa sig á undanförnum dögum og ætla að taka öll atriðin upp svo fleiri megi njóta. Efnt verður í pizzupartý og smiðju í Forstheimum þar sem horft verður á atriðin og spáð og spekúlerað í úrslitin í kvöld og á morgun verður spáð í keppendur og tónlist á laugardagskvöldið.
Hér má skoða sigurlagið Ég á líf.