Jón Margeir Sverrisson Íþróttamaður Reykjavíkur 2012

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Íþróttamaður Reykjavíkur 2012 er sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson úr Ungmennafélaginu Fjölni.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhenti Jóni Margeiri verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Hann fékk af þessu tilefni farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg ásamt eignarbikar og 200.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.

Jón Margeir varð Ólympíumeistari í 200m skriðsundi á Ólympíumótinu í London í sumar. Jón setti einnig nýtt og glæsilegt heimsmet í þessu sama sundi. Jón setti þrjú heimsmet á árinu auk þess að vinna til margra verðlauna í hinum ýmsu sundgreinum á mótum erlendis. Hann er einnig margfaldur Íslandsmeistari árið 2012.

Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur staðið fyrir vali á Íþróttamanni Reykjavíkur og er þetta því í 34. sinn sem Íþróttamaður Reykjavíkur er kjörinn. Meðfylgjandi er listi yfir Íþróttamenn Reykjavíkur frá upphafi.



Tíu aðrir afreksmenn fengu einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn á árinu 2012 í Höfða í dag sem afhendar voru af formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvari Sverrissyni. Íþróttamennirnir eru þau:

Aníta Hinriksdóttir, Íþróttafélagi Reykjavíkur

Anton Sveinn McKee, Sundfélaginu Ægi

Ásdís Hjálmsdóttir, Glímufélaginu Ármanni

Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur

Einar Daði Lárusson, Íþróttafélagi Reykjavíkur

Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi

Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Knattspyrnufélaginu Val

Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur

María Guðsteinsdóttir, Glímufélaginu Ármanni

Þormóður Jónsson, Júdófélagi Reykjavíkur

Hér að neðan eru upplýsingar um árangur ofangreindra íþróttamanna á árinu 2011 en þau hlutu öll 50.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og viðurkenningarskjöld.

Afreksfólk úr íþróttafélögunum í Reykjavík sem fékk viðurkenningu í Höfða 10.janúar 2013 frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.

Aníta Hinriksdóttir, Íþróttafélagi Reykjavíkur

Aníta tvíbætti á árinu 29 ára gamalt Íslandsmet í 800 m hlaupi kvenna auk þess sem hún setti í Íslandsmet í 1.000 m hlaupi. Aníta er nú næstbest á Norðurlöndum í 800 m hlaupi.

Anton Sveinn McKee, Sundfélaginu Ægi

Anton Sveinn er stigahæsti íslenski karlmaðurinn í 25m (838 FINA stig) og sá næst stigahæsti í 50m laug (838 FINA stig). Hann hefur á árinu sett og bætt Íslandsmet sitt í 1500 metra skriðsundi og 800

metra skriðsundi í báðum laugarlengdum auk þess að setja Íslandsmet í 400 metra fjórsundi í 50 og 25 metra brautum.

Ásdís Hjálmsdóttir, Glímufélaginu Ármanni

Ásdís setti nýtt Íslandsmet í undankeppni Ólympíuleikanna í London þegar hún kastaði spjótinu 62,77 m. Ásdís hafnaði síðan í 11.sæti í úrslitakeppninni sjálfri. Á Evrópumeistaramótinu í Helsinki varð hún í 13.sæti.

Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur

Ásgeir varð bæði Íslands-og Bikarmeistari í sínum greinum. Hann keppti í tveimur greinum á Ólympíuleikunum í London og varð þar í 14. sæti í Loftskammbyssu og í 32. sæti Frjálsri skammbyssu. Hann er nú í byrjun desember í 21. sæti á heimslistanum í loftskammbyssunni og í 47. sæti í frjálsri skammbyssu.

Einar Daði Lárusson, Íþróttafélagi Reykjavíkur

Einar Daði er besti tugþrautarmaður Norðurlanda. Hann náði á árinu öðrum besta árangri Íslendings þegar hann krækti í 7898 stig á móti í Kladno í Tékklandi. Hann hafnaði í 13. sæti á Evrópumeistaramótinu í Helsinki.

Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi

Eygló Eygló Ósk er stigahæsta íslenska konan í 25m laug í 200m baksundi (820 FINA stig) og stigahæst í 50 metra laug (877 FINA stig) og ber höfuð og herðar yfir aðrar íslenskar sundkonur í þeim samanburði. Hún hefur á árinu sett og bætt Íslandsmet í 100 metra baksundi og 200 metra baksundi í báðum laugarlengdum auk þess að setja Íslandsmet í 200 metra fjórsundi í báðum brautarlengdum. Einnig setti hún Íslandsmet í 1500m skriðsundi nú í október í 25m braut.

Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur

Haraldur Franklín varð Íslandsmeistari bæði í höggleik og holukeppni á árinu 2012 og hafa fáir leikið það eftir á liðnum árum. Með sigri sínum á Íslandsmóti í höggleik batt Haraldur enda á 27 ára bið GR-inga eftir að eignast á ný Íslandsmeistara í karlaflokki.

Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Knattspyrnufélaginu Val

Guðný Jenný hefur verið Íslandsmeistari með Val árin 2010, 2011 og 2012. Þá varð hún bikarmeistari með Val 2012. Guðný Jenný leikur stöðu markvarðar og hefur verið aðalmarkmaður landsliðsins frá miðju ári 2011 og er lykilmaður í íslenska landsliðinu. Guðný Jenný hefur spilað 39 A-landsleiki og skorað 1 mark. Þá á hún að baki 13 landsleiki með U-21 landsliði kvenna.

Jón Margeir Sverrisson, Ungmennafélaginu Fjölni

Jón Margeir varð Ólympíumeistari í 200m skriðsundi á Ólympíumótinu í London í sumar. Jón setti einnig nýtt og glæsilegt heimsmet í þessu sama sundi. Jón setti þrjú heimsmet á árinu auk þess að vinna til margra verðlauna í hinum ýmsu sundgreinum á mótum erlendis. Hann er einnig margfaldur Íslandsmeistari árið 2012.

María Guðsteinsdóttir, Glímufélaginu Ármanni

María er ein fremsta kraftlyftingakona Norðurlanda og hefur borið höfuð og herðar yfir aðra keppendur í kvennaflokki. María hefur sett fjölda Íslandsmeta á árinu. Hún hafnaði í 9. sæti á Evrópumóti og 11. sæti á Heimsmeistaramóti auk þess að verða Íslandsmeistari í bekkpressu og réttstöðulyftu.

Þormóður Jónsson, Júdófélagi Reykjavíkur

Þormóður varð Bikarmeistari með félagi sínu og varð í öðru sæti í sveitakeppni Júdósambandsins. Hann náði að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London og voru það hans aðrir leikar. Auk þeirra tók hann þátt í fjórum alþjóðlegum mótum á árinu og náði bestum árangri á Opna breska en þar varð hann í sjöunda sæti og á European Cup í Prag varð hann í níunda sæti.