Jón Gnarr, borgarstjóri velur verk vikunnar, Kjarvalsstaðir, fimmtudag, 14. febrúar kl. 12.15

Menning og listir

""

Jón Gnarr, borgarstjóri velur verk vikunnar.

Í tengslum við sýninguna Flæði hefur Listasafn Reykjavíkur kallað eftir aðstoð frá hópi fólks til velja sér uppáhaldsverkið sitt á sýningunni. Fimmtudaginn 14. febrúar kl. 12.15 ætlar Jón Gnarr borgarstjóri að segja frá vali sínu á verki vikunnar í samtali við gesti safnsins.

Á þessari óvenjulegu sýningu gefst almenningi einstætt tækifæri til að sjá stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin tekur stöðugum breytingum þá tæpu fjóra mánuði sem hún stendur yfir en verkum verður sífellt skipt út á sýningartímanum, jafnvel meðan gestir eru viðstaddir. Það má því búast við spennandi sýningu þar sem gestum gefst kostur á að kynnast safneign Listasafns Reykjavíkur á nýjan og spennandi hátt.

Viðburðarröðin á Verki vikunnar er haldið vikulega á fimmtudögum kl. 12.15 á meðan á sýningu stendur. Nánari útlistun á gestum hverju sinni má finna hér: