Jón Gnarr borgarstjóri setti Borgarskákmótið klukkan 16.00 í dag. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Reykjavíkurfélögin, Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir, að mótinu.
Þetta er í 27. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. 73 þátttakendur eru á mótinu og má gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar sé þar á meðal. Skákmenn eru á öllum aldri og ríkti spenna í salnum áður en borgarstjóri tók fyrstu skákina. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Í fyrra sigraði Sigurbjörn Björnsson, sem þá tefldi fyrir Verkís.
Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis.