Jón Gnarr borgarstjóri í Antwerpen á alþjóðlegri ráðstefnu um mannréttindi.

Mannréttindi

""

Jón Gnarr borgarstjóri er nú staddur í Antwerpen í Belgíu þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um mannréttindi. Ráðstefnan er á vegum Mannréttindanefndar Antwerpenborgar og er haldin í tilefni af World Outgames 2013 sem haldnir eru í borginni og verða settir á laugardaginn.

Yfirskrift ráðstefnunnar er „From safe harbours to equality“ og munu þekktir baráttumenn og sérfræðingar í mannréttindum taka til máls og deila þekkingu sinni. Borgarstjóri er einn af aðalræðumönnum ráðstefnunnar og í ræðu sinni fjallar hann um mannréttindi á breiðum grundvelli og stöðu hinsegin fólks.

Ásamt borgarstjóra taka meðal annarra til máls, Bernard Landry, fyrrverandi forsætisráðherra Quebec í Kanada, Jan Peumans, forseti flæmska þingsins og Matti Herrera Bower, borgarstjóri Miami Beach í Bandaríkjunum en Miami Beach verður gestgjafi World Outgames árið 2017. Þátttakendur og gestir ráðstefnunnar koma frá ríflega 35 löndum en henni lýkur á morgun.

Ræða Jóns Gnarr borgarstjóra á ráðstefnunni í Antwerpen (PDF 139KB).