Jólatréð burt með aðstoð Víkinga
Víkingur mun standa fyrir fjáröflun fyrir barna- og unglingastarf laugardaginn 12. janúar næstkomandi þegar safnað verður dósum og flöskum, rafhlöðum og ónýtum farsímum.
Um leið gefst áhugasömum m.a. tækifæri á að losa sig við "gamla" jólatréð í Víkinni milli kl. 11.00 og 17.00 fyrir 1.500 kr.
Með því móti losnar þú við tréð, styrkir þitt íþróttafélag og stuðlar að umhverfisvænni framtíð, en trén verða kurluð niður og notuð í moltugerð.
Reykjavíkurborg mun ekki bjóða uppá hirðingu jólatrjáa frekar en í fyrra og því á hendi hvers og eins að losa sig við tréð.
Tekið er við kortum og þá býðst fólki einnig að senda póst á vikingur@vikingur.is eða hringja á skrifstofu Víkings í síma 519 7600 frá þriðjudegi til föstudags kl. 09:00-16:00 og óska eftir því að tréð verði sótt heim að dyrum.