Jólastemning á Ingólfstorgi um helgina

Umhverfi Mannlíf

""

Jólamarkaður á Ingólfstorgi verður opinn um helgina.  „Jólamarkaðurinn verður með svolítið öðru sniði en hann hefur verið undanfarin ár. Áherslan er á matarvörur og íslenska framleiðslu,“ segja aðstandendur hans. 

Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi verður líka stærri en hann hefur verið undanfarin ár en fyrstu helgina verða 13 bjálkakofar með margvíslegt handverk og matarkyns til sölu. Helgina eftir bætast við bæði jólatrésala og veitingatjald sem selur rjúkandi heitt glögg og fleira.

Þrjátíu jólatrjáa og óteljandi seríu tjaldið

Síðustu fimm daga fyrir jól bætist síðan við stórt tald með 20-30 söluaðilum. Tjaldið verður skreytt með 30 jólatrjám og óteljandi seríum. Meðal söluaðila er kaffihúsið GÆS og allir helstu litlu matarframleiðendur á  landinu.



Opið fram á kvöld

Jólamarkaðurinn opnar um hádegi og er ýmist opinn fram á kvöld eða langt fram á kvöld eftirtalda daga:

• Laugardaginn 7. des., kl. 12 til 18.

• Sunnudaginn 8. desember, kl. 12 til 18.

• Laugardaginn 14. desember, kl. 12 til 22.

• Sunnudaginn 15. des, frá 13 til 18.

• Fimmtudaginn 19. desember, kl. 12 til 22.

• Föstudaginn 20. desember, kl. 12 til 22.

• Laugardaginn 21. desember, kl. 12 til 22.

• Sunnudaginn 22. desember, kl. 12 til 22.

• Mánudaginn 23. desember, Þorláksmessa – kl. 12 – 23.