Jólamarkaður fjölskyldunnar í Frostaskjóli

Skóli og frístund

""

Árlegur jólamarkaður Frostaskjóls er haldinn í dag og er öllum opinn. 

Fastur liður í starfi frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls á aðventunni er jólamarkaður fjölskyldunnar, en þá standa börnin í frístundaheimilum Frostaskjóls og börn og unglingar í Frosta fyrir jólamarkaði til styrktar Rauðakrossi Íslands. Frostaskjól hefur undanfarin ár styrkt barnaheimili í Malaví með peningum sem börnin hafa aflað með þessum hætti um jólin.

Markaðurinn er opinn í dag frá kl. 16:30 - 17:30 í Frístundamiðstöðinni Frostaskjóli.  

Ungmennaráð Vesturbæjar og miðstigsráð Tíu12 sjá um veitingasölu, en gestum býðst að kaupa kaffi, kakó, piparkökur og krap og njóta í góðum félagsskap undir ljúfum jólatónum í hverfisfrístundamiðstöðinni sinni.  Allir eru hvattir til að mæta með góða skapið og leggja góðu málefni lið.