Það er margt um að vera á jólamarkaðnum á Ingólfstorgi nú síðustu dagana fyrir jól. Opnað er kl. 12:00 allla daga til jóla og opið til kl. 22:00 og klukkustund lengur á Þorláksmessu.
Lífrænt ræktuð jólatré, rjúkandi glögg og jólastemning bíður gesta á þessum markaði sem CNN kallaði einn jólalegasta markað í einni jólalegustu borg heims. Kraftaverkahópurinn GÆS verður með jólakaffihús og bjóða til sölu kaffi, kakó, kökur og samlokur ásamt fleiru gúmmilaði. Þau lofa gleði og gamni og miklu jóla jóla.
Auk bjálkakofanna verður mikið líf í stóru tjaldi en þar hafa yfir 20 framleiðendur komið sér fyrir. Bergson Mathús verður með engifer- og eplagrafinn lax, Sandholt verður með ítalskt matarhandverk, Svandís Kandís verður með brjóstsykuristaðar möndlur og margt fleira spennandi.
Listrænir pakkarar og jólaprakkarar
Margvísleg dagskrá verður alla daga til jóla. Jólasveinar heimsækja markaðinn, Lay Low selur diskinn sinn og treður upp og ýmsir kórar koma og syngja fyrir gesti og gangandi.
Á Þorláksmessu verður boðið upp á innpökkunarþjónustu á sanngjörnu verði til styrktar Kvennaathvarfinu. Pakkarnir verða merktir þannig að fólk sér að sá sem gefur pakkann er ekki einungis að gefa þeim gjöf heldur líka styrkja gott málefni. Ýmsir listamenn taka að sér að pakka inn pökkunum og því er ljóst að þeir verða einstaklega fallegir.