Á sunnudaginn, þann 24. nóvember, fara nautgripir og sauðfé í Húsdýragarðinum í jólabúning. Nautgripirnir verða klaufsnyrtir og sauðféð fær jólaklippinguna. Ullin sem kemur af kindunum verður svo unnin á staðnum. Fróðlegt verður fyrir unga sem aldna að fylgjast með og verður hafist handa á klukkan 12 og ráðgert að verkinu ljúki klukkan 13. Ekki missa af þessu!
Sunnudaginn 24. nóvember mun Guðmundur Hallgrímsson koma í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til þess að snyrta klaufir nautgripa og rýja sauðfé. Með honum í för verður föruneyti Ullarselskvenna frá Hvanneyri sem vinna munu band úr ullinni jafnóðum og Guðmundur rýr. Guðmundur sem er fróður mjög um bæði verkin gefur sér góðan tíma og fræðir gesti garðsins um leið og hann vinnur og svarar spurningum.
Guðmundur mun hafa meðferðis sérstakan klaufsnyrtingabás svo verkið gangi örugglega fyrir sig. Rannsóknir hafa sýnt að kýr sem eru klaufsnyrtar reglulega líði almennt betur, nyt þeirra er meiri sem og frjósemi. Byrjað verður að snyrta klukkan 12 og verður klaufsnyrtingunni lokið klukkan 13.
Rúningur hefst strax að lokinni klaufsnyrtingu og búast má við að allar ær og eini hrútur garðsins verði komin með jólaklippinguna klukkan 16. Guðmundur hefur rúið ófáar ær og hrúta í gegnum tíðina og ef að líkum lætur verður hann óspar á lýsingar um verkið.
Verið velkomin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
Opið alla daga frá klukkan 10 til 17