Jól í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum geta hugrakkir gestir heimsótt jólaköttinn en reistur hefur verið hryssingslegur kofi handa honum í garðinum sem hann dvelst í flesta daga. Svo virðist sem hann fari á flakk að nóttu og ónáði dýrin og valdi usla og næturvörður garðsins kemur ábendingum um ferðir hans til gesta. 

Hægt verður að skella sér í ferðir í Jólahringekjunni, Jólalestinni og á hestbak á hestum garðsins um helgar ef veður og færð leyfir. 

Dýrin fá jólatuggu, jólasíld og hvað sem við á og jólalegt tilboð verður handa mannfólkinu í Kaffihúsi garðsins sem er opið alla daga líkt og garðurinn. Nánari upplýsingar um dagskrá desember má sjá á www.mu.is

Aðventan í Laugardalnum býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Í fallegu umhverfi getur fjölskyldan átt saman skemmtilegan dag. Auk þess að kíkja í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er hægt að skauta í kringum jólatré í Skautahöllinni, heimsækja Ásmundarsafn, ganga um Grasagarðinn, fá sér heitt kakó og ristaðar möndlur á Café Flóru eða stinga sér í Laugardalslaugina.