Íslenski fjallahjólaklúbburinn með hjólanámskeið

Íþróttir og útivist

""

Á dögunum fékk Íslenski fjallahjólaklúbburinn styrk úr sjóðnum "ódýrari frístundir" og notuðu þeir styrkinn til að vera með námskeið fyrir börn í grunnskólum Vesturbæjar en námskeið þetta kölluðu þeir "Hjólaleikafélagið". Að sögn skipuleggjanda þetta gekk vel fyrir sig og var gleði meðal þátttakenda sem mestu máli skiptir. Þetta er einn liðurinn í því að auka hjólamenningu almennings og aðstoða börnin við að auka leikni sína á hjólum.

Þetta er flott framtak og sýnir sig að það er um að gera að sækja um styrki í sjóði borgarinnar til að geta komið verkefnum eins og þessu af stað.