Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar frá Tiger Íslandi ehf. um að fyrirtækið hafi ákveðið að innkalla frá neytendum litlar hjartalaga pönnur þar sem komið hefur í ljós að húðunin á þeim getur flagnað af.
Vöruheiti: Hjartalaga panna með svörtu handfangi (e. Heart fryer /black handle).
Vörunúmer: 20091744.
Framleiðsluland: Kína.
Dreifing: Tiger Kringlunni, Laugavegi, Glerártorgi og Smáralind.
Þeir neytendur sem keypt hafa umrædda vöru geta skilað henni í einni af fjórum verslunum Tiger á Íslandi gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir skrifstofa Tiger á Íslandi í síma 565 9930 eða á netfanginu tiger@tiger.is.
Sjá orðsendingu frá Tiger.