Katla matvælaiðja ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Bónus karrí þar sem staðfest er að Salmonella greindist í einni dós.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innkölluð er:
Vörumerki: Bónus.
Vöruheiti: Karrí.
Nettóþyngd: 120 g.
Geymsluþolsmerking: B.F. (best fyrir): 13.08.2014.
Strikamerki: 5690350051927.
Framleiðandi: Katla matvælaiðja ehf., Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónus um land allt.
Bónus karrí með ofangreindri „best fyrir“ dagsetningu hefur þegar verið tekin úr sölu í verslunum. Viðskiptavinir Bónus sem keypt hafa Bónus karrí með „best fyrir“ dagsetningu 13.08.2014 er bent á að nota hana ekki og skila til framleiðanda og verður viðskiptavinum bætt óþægindin við skil. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Magnússon framkvæmdastjóri Kötlu matvælaiðju ehf. í síma 567 4422 eða á netfanginu magnusson@katla.is.