Innköllun á Hornafjarðarhumri
Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar frá Matvælastofnun um að Skinney-Þinganes hf. hafi ákveðið að innkalla af markaði Hornafjarðarhumar skelbrot vegna þess að varan inniheldur aukefnið E 223 án þess að viðurkennt heiti þess (natríummetabísúlfít) komi fram á umbúðum vörunnar. Er því ekki um skýra merkingu m.t.t. ofnæmis- og óþolsvalda að ræða.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Hornafjarðarhumar skelbrot.
Nettóþyngd: 2 kg.
Strikanúmer: 5690877920027.
Framleiðandi: Skinney-Þinganes hf., Hornafirði.
Umbúðir: Pappaöskjur.
Geymsluskilyrði: Frystivara.
Dreifing: Verslanir Nettó um land allt.
Súlfít, í styrk sem er yfir 10 mg/kg eða 10 mg/l er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti geta haft samband við Humarsöluna ehf., Básvegi 1 í Reykjanesbæ, sími 867 6677 og fengið henni skilað.