Innköllun á First Price haframjöli

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innköllun á haframjöli frá First Price vegna þess að aðskotahlutir fundust í vörunni.

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
 
Efni:  Innköllun á First Price haframjöli vegna aðskotahluta.  
 
Kaupás hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað haframjöl frá First Price vegna þess að aðskotahlutir fundust í vörunni.  Um er að ræða vöru með best fyrir dagsetningu 2. ágúst 2014.  
 
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
 
Vörumerki:  First Price.
Vöruheiti:  Havregryn - finvalsede.
Strikanúmer:  7311041072981.
Nettóþyngd:  1 kg.
Best fyrir:  02.08.2014.
Framleiðandi:  Framleitt fyrir SuperGros a/s.
Framleiðsluland:  Þýskaland.
Dreifing:  Verslanir Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals um land allt.
 
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila þeim í viðkomandi verslun.