Innköllun af markaði á Lasagne 375 g. merkt Findus

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Sölustöðvun og Innköllun af markaði á Lasagne 375 g. merkt Findus.

Eggert Kristjánsson hf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, tekið af markaði og innkallað frá neytendum eftirfarandi matvæli: Lasagne 375 g. merkt Findus. Varan inniheldur mögulega hrossakjöt sem ekki kemur fram í innihaldslýsingu.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem verið er að innkalla:

Vörumerki: Findus

Vöruheiti: Lasagne

Framleiðandi: Findus, Svíþjóð

Innflytjandi: Eggert Kristjánsson hf., Skútuvogi 3

Nettóþyngd:  375 g.

Dreifing: Verslanir um land allt.

Eggert Kristjánsson hf. biður þá sem keypt hafa umrædda vöru og eiga hana heima hjá sér að skila henni til Eggerts Kristjánssonar hf.,  Skútuvogi 3. Sími 5685300.

Frekari upplýsingar veitir Marteinn Magnússon í síma 660 4401.