Ingunnarskóli og Réttarholtsskóli komnir í úrslit Skrekks

Skóli og frístund

""

Nemendur Ingunnarskóla túlkuðu í kvöld átök milli góðs og ills í líkama sjúklings. Nemendur í  Réttarholtsskóla tóku í sínu atriði fyrir útlitsdýrkunina og hvernig hún getur gengið út í öfgar hjá ungum konum, s.s. með lystarstoli. 

Þriðja og síðasta undankvöldið er á morgun miðvikudag þegar Austurbæjarskóli, Fellaskóli, Hagaskóli, Kelduskóli-Vík, Klébergsskóli, Laugalækjarskóli, Rimaskóli og Sæmundarskóli etja kappi um sæti á úrslitakvöldinu sem fram fer 25. nóvember og er í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Skjá Einum.

Dómnefnd velur að auki tvö atriði til úr hópi þeirra sem ekki komust áfram í fyrstu atrennu til þátttöku í úrslitunum.