Ingi B. Poulsen verður umboðsmaður borgarbúa

Mannréttindi

""

Reykjavíkurborg hefur ráðið Inga B. Poulsen í stöðu umboðsmanns borgarbúa.

Ingi er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur stundað framhaldsnám í umhverfis- og auðlindarétti. Hann fékk héraðsdómslögmannsréttindi árið 2008 og  starfaði um tæplega fjögurra ára skeið hjá embætti borgarlögmanns við almenn málflutningsstörf,

lögfræðilega ráðgjöf innan borgarkerfisins og málflutning á kærustigi innan stjórnsýslunnar. Síðastliðin ár hefur Ingi starfað sem meðeigandi á lögmannsstofu.

Staða umboðsmanns borgarbúa hjá Reykjavíkurborg var auglýst laus til umsóknar á vegum Capacent Ráðninga í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu hinn 12. janúar sl. og rann umsóknarfrestur út hinn 28. janúar sl.

Alls bárust 19 umsóknir. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka vegna opinberrar birtingar á lista yfir umsækjendur.

 

Að ráðningarferli loknu var það samdóma mat allra þeirra sem að ferlinu komu að Ingi B. Poulsen þætti hæfastur í starf umboðsmanns borgarbúa og var honum boðið starfið.

Í ráðningarferlinu kom m.a. fram einstaklega skýr sýn hans á starfið og hlutverk umboðsmanns borgarbúa, auk þess sem hann þótti sýna verkefninu djúpan skilning og áhuga.

 

Helstu verkefni umboðsmanns borgarbúa verða eftirfarandi:

• Að leiðbeina íbúum í samskiptum þeirra við embætti og stofnanir borgarinnar og veita þeim ráðgjöf um rétt sinn. Markmiðið er að opna gátt, tryggja leið og aðkomu borgarbúa að stjórnsýslunni.

• Að leiðbeina borgarbúum og fyrirtækjum sem telja á sér brotið við meðferð mála hjá Reykjavíkurborg auk þess að sinna almennum kvörtunum og ábendingum varðandi þjónustu.

• Að veita ráðgjöf um endurupptökuheimildir og/eða kæruleiðir vegna þeirra mála sem til hans koma  Að hafa eftirlit með stjórnsýslunni í umboði forsætisnefndar og heimild til rannsóknar að eigin frumkvæði.

• Að veita mannréttindaskrifstofu lagalega aðstoð vegna erinda borgarbúa sem snúa að mismunun.

Ingi mun hefja störf 1. mars.

Listi yfir umsækjendur um stöðu umboðsmanns borgarbúa:

1 Bárður Steinn Róbertsson Lögfræðingur

2 Dagný Rut Haraldsdóttir Lögfræðingur

3 Einar Örn Thorlacius Lögfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Rvk.

4 Elín Sigrún Jónsdóttir Lögfræðingur

5 Fjóla Einarsdóttir Þróunar- og stjórnmálafræðingur

6 Freyr Björnsson Lögfræðingur

7 Georg Andri Guðlaugsson Lögfræðingur

8 Guðmundur Bjarni Ragnarsson Lögfræðingur

9 Hafliði Hjartarson Lögfræðingur

10 Heiðrún Björk Gísladóttir Lögfræðingur

11 Ingi B. Poulsen Lögfræðingur

12 Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Lögfræðingur og jafnréttisráðgjafi

13 Jón Sigurðsson Viðskiptafræðingur

14 Laufey Kristjánsdóttir Lögfræðingur

15 Margrét Lilja Gunnarsdóttir BA lögfræði

16 Nanna Magnadóttir Aðalráðgjafi

17 Vigdís Þóra Sigfúsdóttir Lögfræðingur

18 Þóra Jónsdóttir BA lögfræði