Inga Dagmar Karlsdóttir 100 ára

Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3

Inga Dagmar Karlsdóttir 100 ára

Þann 15. apríl varð Inga Dagmar, íbúi í þjónustuíbúðum Lönguhlíð 3, 100 ára. Af því tilefni var boðið upp á kaffiveitingar fyrir afmælisbarnið, íbúa og starfsmenn. Frábærir söngvarar, Stefán Stefánsson og Davíð Ólafsson, sungu til Ingu Dagmarar og færðu henni blómvönd frá íbúum og starfsfólki. 

Framkoma og söngur þeirra félaga vakti mikla kátínu og  höfðu  íbúar orð á því að þetta væri ein sú ánægjulegasta skemmtun sem haldin hefur verið að Lönguhlíð 3. Inga Dagmar var alsæl og steig dans með Stefáni söngvara en dans er hennar líf og yndi. 

Allir viðstaddir voru með bros á vör eftir þessa eftirminnilegu samverustund sem  lengi verður í minnum höfð.