Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Vesturbæinn

Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732. 

Kjörsókn í borginni var alls 6,3%.  Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%. 

Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%. 

Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.

Vesturbæingar kusu 16 verkefni til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 36.8 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Vesturbæ var 999 en kjörsókn var 8%.  Skipting kynja var jöfn en 8,7% kvenna kusu á móti 7,3% karla. 

Meðal stórra verkefna í Vesturbæ verða: 

Endurbæta Bláa róló á horni Bræðraborgarstígs og Túngötu. Kostnaður 7 milljónir. 

Setja upp hreystivöll eða þrautabraut á skólalóð Hagaskóla. Kostnaður 5 milljónir. 

Endurbæta gróður á ýmsum stöðum á borgarlandi í Vesturbæ. Kostnaður 4 milljónir. 

Útbúa aðstöðu við stíga á Landakotstúni með bekkjum og gróðri. 

Sjá niðurstöður fyrir Vesturbæ.