Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Árbæ
Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732.
Kjörsókn í borginni var alls 6,3%. Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%.
Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%.
Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.
Árbæingar kusu 12 verkefni en kostnaður við að framkvæma þau verður 27 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Árbæ var 475 og kjörsókn 5,9%. Skipting milli kynja var nokkuð jöfn í Árbæ en þar kusu 6,6% kvenna á móti 5,2% karla.
Laga útivistarsvæði við Rauðavatn Kostnaður 3 milljónir.
Ljúka frágangi í Björnslundi, klára stíga setja upp bekki og fleira 3 milljónir.
Lagfæra aðkomuveg að útivistarsvæði norðan Rauðavatns. Kostnaður 3 milljónir.
Setja upp vatnshana í Elliðaárdal – nánar staðsett síðar. Kostnaður 5 milljónir.
Setja upp lýsingu á göngustíg frá Björnslundi að undirgöngum. Kostnaður 4.5 milljónir.