Íbúar í Miðborginni kusu hundagerði

Umhverfi Framkvæmdir

""

Hundagerði var meðal þeirra verkefna sem íbúar í Miðborginni völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra.  Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.



Óskir íbúa í Miðborginni beindust einnig að bættu öryggi í umferðinni og umgengi:  



1. Sett var upp hundagerði í nágrenni við umferðarmiðstöðina.



2. Lífríki Tjarnarinnar var bætt með því að planta síkjamara.



3. Gerðar voru breytingar á Njarðargötu, sunnan Hringbrautar til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda yfir Njarðargötu við Sturlugötu.



4. Ruslafötum var fjölgað á völdum stöðum í miðbænum.



5. Tjarnarkanturinn var lagaður.  Steinhleðsla ásamt stétt var endurgerð.



6. Gróður og ker á Lækjartorgi og umhverfi voru endurbætt.



7. Biðsvæðaverkefni á torgi við Baldurs-, Nönnu- og Óðinsgötu.



Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Miðborginni var í fyrra um 19 milljónir króna og verður það óbreytt í ár.  Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.



Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 23. janúar kl. 17.