Íbúar áhugasamir um uppbyggingu í Úlfarsárdal

Nýr samþættur leik- og grunnskóli með frístunda- og félagsaðstöðu verður byggður í Úlfarsárdal á næstu árum.  Þá er á áætlun að byggja nýja sundlaug, íþróttahús og aðra aðstöðu við íþróttasvæðið í dalnum. Einnig verður byggð upp aðstaða fyrir menningar- og félagsstarf fyrir Úlfarsársdal og Grafarholt, en þar er meðal annars gert ráð fyrir bókasafni.     

Þessar fyrirætlanir voru kynntar á fundi með íbúum Grafarholts og Úlfarsárdals í gær. Samþykktir borgarstjórnar gera ráð fyrir um 3,7 milljörðum króna til uppbyggingar  í Úlfarsárdal á næstu fimm árum. Uppbygging nýrra skóla-, menningar-  og íþróttamannvirkja mun styrkja svæðið í heild, en í allri hugmyndavinnu hefur verið horft heildstætt til þjónustu við íbúana í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsási. 

Hönnunarsamkeppni um útfærslur nýrra mannvirkja

Fljótlega verður efnt til hönnunarsamkeppni um útfærslur nýju mannvirkjanna. Á fundinum voru kynntir tveir möguleikar á staðsetningu þeirra og bjóða þeir upp á mismunandi útfærslur. Hugmyndir gera ráð fyrir góðri tengingu milli mannvirkja og samnýtingu allrar aðstöðu. Nýja íþróttahúsið verður tengt skólanum en þar verður æfinga- og keppnishús með áhorfendaaðstöðu. Sundlaug með útisvæði og heitum pottum verður opin almenningi en jafnframt verður lítil innilaug sem hentar til æfinga, kennslu og ungbarnasunds.  Bókasafnið yrði staðsett miðlægt og hefði það hlutverk sem menningarmiðja í hverfinu.

Sameiginlegur vinnuhópur borgar og íbúa

Nýja sundlaugin og íþróttahúsið verður góð viðbót við íþróttaaðstöðuna í Úlfarsárdal og Grafarholti. Þar eru nú þegar íþróttasalir og boltagerði við Ingunnarskóla og Sæmundarskóla.  Í Leirdal er grasæfingasvæði og félagsaðstaða, við Úlfarsá er kominn gervigrasvöllur og æfingasvæði og við Dalskóla er boltagerði.  

Íþróttafélagið Fram vill taka þátt í framtíðaruppbyggingu þjónustu  í hverfinu í samvinnu við Reykjavíkurborg og kynntu fulltrúar félagsins áherslur sínar á fundinum.  Fyrirætlanir nú eru mun lágstemmdari nú en áður þegar aðalskipulag gerði ráð fyrir mun fjölmennari byggð.

Í drögum að nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir að Úlfarsárdalur verði eitt skólahverfi með um 1.100 – 1.400 íbúðum.  Vinnuhópur foreldra, kennara, nemenda, starfsmanna á þjónustumiðstöð hverfisins og fulltrúa Reykjavíkurborgar hefur gert tillögu um umgjörð skólastarfs og frístunda í hverfinu og leggur það hönnuðum línur í útfærslu skólabyggingarinnar.  Í nóvember kom út ítarleg samantekt á þeirri vinnu og er hana að finna neðst á vefsíðunni.

 Áhugi á hraðari uppbyggingu

Úlfarsárdalur og Reynisvatnsás eru yngstu hverfi borgarinnar og eru þau enn í uppbyggingu.  Unnið er við frágang á gangstéttum, kantsteinum, gróðri og endanlegri lýsingu þegar íbúar hafa að mestu lokið við lóðir er að mestu lokið.  Það er gert til að koma í veg fyrir að stéttar eyðileggist ekki vegna umferðar þungra vinnuvéla og steypubíla.  Í ár er 40 milljónum króna veitt í umhverfisfrágang og munu framkvæmdir standa yfir í sumar. Fyrir nokkru síðan var farið sérstaklega yfir gönguleiðir skólabarna og m.a. bætt úr lýsingu.  Mikill áhugi er fyrir því að byggja hverfið hraðar upp og í undirbúningi er að bjóða út þær lóðir sem enn eru lausar.  Nýir útboðsskilmálar verða að öllum líkindum lagðir fyrir borgarráð í apríl og lóðir auglýstar að fengnu samþykki  þess.  

 

ÍTAREFNI:

Kynningar á íbúafundi:  

Annað efni: