Íbúafundur í Miðborg vel sóttur
Tæplega 70 manns sóttu íbúafund borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur sídegis í gær. Fjölmörgum fyrirspurnum var beint til borgarstjóra og embættismanna sem sátu fyrir svörum á fundinum. Að auki komu fram góðar hugmyndir varðandi verkefnið Betri hverfi.
Jón Gnarr borgarstjóri fór yfir helstu framkvæmdir og áherslur borgarinnar í Miðborginni. Hann fór síðan ítarlega yfir þau verkefni sem framkvæmd hafa verið í Miðborginni og íbúar völdu í rafrænum kosningum í fyrra. Þar á meðal var hundagerði við Vatnsmýrarveg og endurgerð Tjarnarkantsins og plöntun síkjamara í Tjörnina, endurbætur á gönguleiðum og umferðarmannvirkjum til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og fleira.
Íbúar í miðborg Reykjavíkur hafa nokkrar áhyggjur af umgengninni í miðbænum en þar voru skiptar skoðanir. Einhverjir töldu að hún hefði batnað en aðrir lýstu ófremdarástandi. Borgarstjóri sagði að hugarfarsbreyting þyrfti að verða meðal borgarbúa til að ástandið batnaði. Allir þyrftu að leggjast á eitt til að halda borginni hreinni og halda aftur af ólátum.
Í miðborginni hefur endurgerð Klapparstígs verið stórt verkefni og stendur til að klára hann næsta sumar. Þá verður ráðist í mjög svo tímabæra endurhönnun og endurgerð Hverfisgötu og Frakkastígs.
Haldin verður hugmyndasamkeppni um nýja útilaug og endurbætur á gömlu Sundhöllinni. Þá mun borgin ráðast í endurbætur á Spennistöðinni við Austurbæjarskóla fyrir frístundastarf ungmenna í hverfinu.
Borgarstjóri hvatti íbúa til að taka virkan þátt í því að koma með hugmyndir að betra hverfi í Miðborginni og að kjósa um verkefnin í rafrænum íbúakosningum sem fara fram dagana 14. – 19. mars nk.
Fundurinn var málefnalegur í alla staði en frekari fyrirspurnir er hægt að senda inn á betrireykjavik@ibuar.is. Hægt er að setja inn hugmyndir að verkefnum í Betri Hverfi á samráðsvefnum betrireykjavik.is. Verður opið fyrir innsendar hugmyndir til 15. febrúar nk.
Hverfapottur Miðborgarinnar í ár er um 24 milljónir króna en í hverfinu búa tæplega níu þúsund íbúar. Smærri framkvæmdir og viðhaldsverkefni sem íbúar geta forgangsraðað og kosið um í rafrænum kosningum í mars eru fjármagnaðar með pottinum.
Ítarefni: