Íbúafundur í dag um uppbyggingu í Úlfarsárdal

Reykjavíkurborg stendur fyrir almennum íbúafundi um uppbyggingu skólahúsnæðis, sundlaugar, bókasafns og íþróttaaðstöðu í Úlfarsárdal í dag kl. 17.30 – 19.00.  Fundurinn er haldinn í Sæmundarskóla.



Samþykktir borgarstjórnar gera ráð fyrir um 3,7 milljörðum króna til uppbyggingar  í Úlfarsárdal á næstu fimm árum. Uppbygging nýrra skóla-, menningar-  og íþróttamannvirkja mun styrkja svæðið í heild, en í allri hugmyndavinnu hefur verið horft heildstætt til þjónustu við íbúana í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsási.  Á fundinum verður farið yfir þá möguleika sem uppbyggingin gefur fyrir svæðið í heild.

DAGSKRÁ

• Ávarp borgarstjóra.

• Skipulag Úlfarsárdals:  Björn Axelsson skipulagsfulltrúi í Reykjavík.

• Íþróttafélagið Fram: Fulltrúar Fram kynna hugmyndir um starfsemi félagsins.

• Fulltrúi frá Íbúasamtökum Úlfarsárdals ávarpar fundinn.

• Fulltrúi frá Íbúasamtökum Grafarholts ávarpar fundinn.

• Samlegðaráhrif skóla, íþrótta- og menningarmannvirkja: Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður og Guðrún Dís Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Gerðubergs.

• Tímaáætlun undirbúnings og framkvæmda í Úlfarsárdal: Rúnar Gunnarsson, skrifstofa skipulags, byggðar og borgarhönnunar.

• Umræður.



Fundarstjóri er Hrólfur Jónsson, skrifstofa eigna og atvinnuþróunar.