Íbúafundir með borgarstjóra í öllum hverfum

Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum Reykjavíkur dagana 14. – 29. janúar nk.

Fundirnir eru hluti af verkefninu Betri Hverfi en frá og með mánudeginum 14. janúar geta Reykvíkingar sett inn hugmyndir að alls kyns smærri verkefnum, nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum, sem ætlað er að bæta íbúahverfi borgarinnar. Tekið er á móti hugmyndum á samráðsvefnum Betri Reykjavík á undirvefnum Betri Hverfi.

Í fyrra bárust hátt í 400 hugmyndir frá borgarbúum um verkefni í hverfunum. Reykjavíkurborg hyggst enn á ný verja 300 milljónum til svokallaðra hverfapotta og geta íbúar hverfanna komið með hugmyndir að verkefnum og síðan kosið um þær í rafrænum íbúakosningum sem haldnar verða dagana 14. – 19. mars nk. með sama hætti og í fyrra.

Á fundunum mun borgarstjóri fara yfir verkefni síðasta árs sem nú hafa verið framkvæmd í hverfunum auk þess sem óskað verður eftir hugmyndum að nýjum verkefnum til að bæta íbúahverfin í Reykjavík.  Einnig verður óskað eftir því á fundunum að íbúar gefi kost á sér til að fylgja eftir hugmyndunum frá byrjun til framkvæmdar. Í för með borgarstjóra verða æðstu embættismenn Reykjavíkurborgar.

Fyrirkomulagið verður þannig að borgarstjóri mun taka til máls, síðan verður fyrirspurnatími en svo gefst fólki kostur á því að setjast niður, ræða málin og skrá niður hugmyndir sem verða settar fram í nafni íbúafundanna í hverju hverfi.

„Ég hvet fólk til þess að koma vel nestað af góðum og uppbyggilegum hugmyndum á fundina svo að við getum gert Reykjavík enn betri en hún er,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri. „Í fyrra komu borgarbúar með fjölmargar frábærar hugmyndir og nú hafa vel yfir hundrað af þeim verið framkvæmdar. Þær hafa þegar sett góðan svip á borgina.“

Fundir borgarstjóra hefjast í Laugardal, mánudaginn 14. janúar kl. 17.00 í Laugalækjarskóla.



ÍBÚAFUNDIR MEÐ BORGARSTJÓRA Í ÖLLUM HVERFUM

Laugardalur:
Mánudagur, 14. janúar, kl. 17.00, Laugalækjarskóli

Árbær: Miðvikudagur 16. janúar kl. 17.00, Árbæjarskóli

Vesturbær: Fimmtudagur, 17. Janúar, kl. 17.00, Hagaskóli.

Háaleiti - Bústaðir: Mánudagur, 21. janúar  kl. 17.00, Réttarholtsskóli

Breiðholt: Þriðjudagur 22. janúar kl. 17.00, Gerðuberg

Miðborg: Miðvikudagur 23. janúar kl. 17.00, Ráðhúsi Reykjavíkur

Grafarholt – Úlfarsárdalur: Fimmtudagur 24. janúar kl. 17.00, Sæmundarskóli.

Kjalarnes: Fimmtudagur 24. janúar kl. 20.00, Klébergsskóli

Hlíðar: Mánudagur 28. janúar kl. 17.00, Kjarvalsstaðir

Grafarvogur: Þriðjudagur 29. janúar kl. 17.00, Gufunesbær