Hvunndagshetjum boðið til veiða í Elliðaánum

Íþróttir og útivist

""

Borgarstjóri hefur í samráði við meirihluta kjörinna fulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar ákveðið að lýsa eftir ábendingum um reykvískar hvunndagshetjur sem gætu átt skilið að fá boð um veiðileyfi í Elliðaánum.

Reykjavíkurborg hefur þrjá daga til  úthlutunar í ánum sem ætlaðir eru hvunndagshetjum og einstaklega dugmiklum starfsmönnum borgarinnar. Er þetta fjórða árið sem þessi háttur er hafður á.

Reykvíkingur ársins 2013, Ólafur Ólafsson, formaður íþróttafélagsins Aspar, sem er íþróttafélag fatlaðs fólks og þroskahamlaðs, opnaði árnar í gærmorgun og fékk strax lax. Góð laxgengd virðist ætla að vera í ánum í sumar.

Vinsamlegast sendið ábendingar um hvunndagshetjur á netfangið ellidaar@reykjavik.is