Hvernig tryggjum við rétt allra barna óháð uppruna?

Velferð Mannlíf

""

Þann 20. febrúar 2013 var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, Barnasáttmálinn, lögfestur á Alþingi Íslendinga. Í tilefni af lögfestingunni verður efnt til tveggja morgunverðarfunda  á Grand hótel 19. september og 20. nóvember frá 8.15- 10:30.

Þann 20. febrúar 2013 var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, Barnasáttmálinn, lögfestur á Alþingi Íslendinga. Í tilefni af lögfestingunni verður efnt til tveggja morgunverðarfunda  á Grand hótel 19. september og 20. nóvember frá 8.15- 10:30. Fjallað verður um hvernig hægt sé að tryggja rétt allra barna á Íslandi óháð uppruna. 



Á fundinum þann 19. september mun Hjördís Eva Þórðardóttir vera með erindi sem nefnist Lögfesting Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Hvað nú?, Dagbjört Ásbjörnsdóttir, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Kampur verður með erindið Frístundir fyrir alla? Skipulagt frístundastarf í fjölmenningarlegu samfélagi, Renata Emilsson Peskova verður með erindi sem nefnist Að tryggja rétt barna til móðurmálakennslu, Guðni Olgeirsson sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu mun fjalla um menntun barna af erlendum uppruna og helstu niðurstöður HringÞings og áskoranir í kjölfar löggildingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.



Lögfesting Barnasáttmálans markaði kaflaskil fyrir stöðu barna á Íslandi, en með ákvörðun Alþingis voru einstaklingsbundin réttindi barna staðfest með afgerandi hætti.  Í sáttmálanum er kveðið á um þau réttindi sem öll börn eiga að njóta óháð uppruna eða aðstæðum þeirra eða foreldra þeirra. Öll börn á Íslandi eiga rétt á að lifa og þroskast, njóta menntunar, heilsugæslu, umönnunar og verndar gegn hvers kyns ofbeldi. Öll börn eiga rétt til tómstunda og leikja og að tjá sig.



Seinni morgunverðarfundurinn verður haldinn 20. nóvember á afmælisdegi Barnasáttmálans en þá eru liðin 24 ár frá því að hann var samþykktur af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar.



Að morgunverðarfundunum standa Teymi um málefni innflytjenda, umboðsmaður barna, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi,  Námsgagnastofnun, Reykjavíkurborg, Samtökin Móðurmál og Samtök kvenna af erlendum uppruna.

Fundarstjóri verður Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Fundirnir eru öllum opnir. Kostnaður fyrir hvern fund er kr. 2300 og er morgunverður innifalinn. Greiða þarf við innganginn.

Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið: womeniniceland@womeniniceland.is