Hverfissjóður Reykjavíkur

Skipulagsmál

""

Styrkumsóknir 2013

Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 10. júní 2013.

  • Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni.
  • Einstaklingar, hópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um.
  • Hámaksupphæð hvers styrks er 700.000 krónur.

Umsóknareyðublað - sækja um styrk úr Hverfissjóði Reykjavíkur



Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið hverfissjodur@reykjavik.is

Ef ekki er hægt að senda umsókn rafrænt má senda hana til:

Þjónustuver Reykjavíkurborgar

Borgartúni 12-14,

105 Reykjavík

merkt „Hverfissjóður Reykjavíkur“

Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri stjórnar sjóðsins Þór Steinarsson í síma 411 3023.

Um Hverfissjóð Reykjavíkur

Hverfissjóður Reykjavíkurborgar byggir á samfélagssjóði SPRON sem var færður borginni til varðveislu og úthlutunar. Í stjórn Hverfissjóðs Reykjavíkur. sitja samkvæmt skipun borgarstjóra: Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson og Jón Halldór Jónasson.

Fyrst er veitt úr sjóðnum árið 2013.

Nánari upplýsingar:

  • Stofnskrá Hverfissjóðs Reykjavíkur
  • Úthlutunarreglur Hverfissjóðs Reykjavíkur
  • Umsóknareyðublað - sækja um styrk úr Hverfissjóði Reykjavíkur
  • Eyðublað fyrir greinargerð um ráðstöfun styrkfjár