Hver er ég?
Náum áttum heldur morgunverðarfund miðvikudaginn 17. apríl undir yfirskriftinni; Hver er ég? Kynferði og sjálfsmynd unga fólksins. Áhrifaþættir á sjálfsmynd barna, ábyrgð skóla, foreldra og fjölmiðla.
Unnur Gísladóttir framhaldsskólakennari og frístundaráðgjafi fjallar um hvað hafi áhrif á kyngervi ungs fólks. Guðbjörg Ríkey og Nanna endurspegla rödd unga fólksins en þær koma frá nýstofnuðu feministafélagi Menntaskólans í Reykjavík. Að lokum fjallar Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur hjá Embætti landlæknis, um útlistdýrkun og líkamsvirðingu.
Fundarstjóri verður Margrét Júlía Rafnsdóttir.
Þátttökugjald er 1800 krónur en innifalið í því er morgunmatur. Öllum er velkomið að taka þátt í morgunverðarfundum Náum áttum hópsins, sem er opinn samstarfshópur um fræðslu- og forvarnamál.
Sem fyrr er skráning á fundinn á heimasíðunni http://naumattum.is.