Hvatningarverðlaun velferðarráðs

Velferð

""

Velferðarráð óskar eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna velferðarráðs. Verðlaunin eru veitt fyrri eftirtektaverða alúð, þróun og/eða nýbreytni í velferðarþjónustu. Ráðið leitar nú að starfsstað, starfsmanni, hóp eða verkefni sem er fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Hvatningarverðlaun velferðarráðs eru nú veitt í annað sinn en þeim er ætlað að skapa hvetjandi vinnustaðamenningu og vekja athygli á gróskumiklu starfi í velferðarmálum Reykjavíkurborgar, auk þess að stuðla að aukinni nýbreytni og þróun í starfi.

Í fyrra fékk Kristjana Gunnarsdóttir, deildarstjóri þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis, viðurkenningu í flokki einstaklinga en auk einstaklingsverðlauna fékk Þjónustumiðstöðin vinnustaðaverðlaunin og starfshópur að Dalbraut 21 - 27 vann í flokknum hópar/verkefni en starf hópsins þótti einkennast af alúð, nýbreytni og þróun.

Auk verðlaunanna hlutu Atvinnutorgið og forstöðumenn búsetukjarna fyrir geðfatlaða sérstaka viðurkenningu fyrir athyglisverð verkefni.

Velferðarráð hvetur alla sem starfa beint að eða í samstarfi við velferðarþjónustu til að senda inn tilnefningu fyrir 4. mars 2013. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu velferðarsviðs, hvatningarverðlaun.