Hvatningarverðlaun fyrir framsækið skóla- og frístundastarf

Skóli og frístund Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri, Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs og Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs afhentu í dag hvatningarverðlaun fyrir framsækið fagstarf í skólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum borgarinnar. Þrenn verðlaun voru veitt á hverju fagsviði; til leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfs.Verðlaun hlutu:

  • Leikskólinn Blásalir fyrir verkefnið, Jörðin snýst og við líka (The earth is moving and so are we). Nordplus verkefni.
  • Leikskólinn Laufskálar fyrir verkefnið, Leiklistarleikskóli.
  • Leikskólinn Sæborg fyrir verkefnið, Okkar Sæborg.



  • Háteigsskóli fyrir verkefnið, Verkhringur á unglingastigi.
  • Hólabrekkuskóli fyrir verkefnið, Olympics International.
  • Laugarnesskóli fyrir verkefnið, Foreldrar bregða á leik í stærðfræði.



  • Félagsmiðstöðvar Miðbergs, hæfileikakeppnin Breiðholt´s got talent.
  • Félagsmiðstöðvar Kamps, Stuttmyndahátíðin Hilmarinn.
  • Skólahljómsveit Austurbæjar - Vilborg Jónsdóttir

     

 Að auki hlutu tvö samstarfsverkefni í hverfum viðurkenningu.

  • Samstarfsverkefnið Okkar mál í Fellahverfi. Þeir sem eiga aðild að því eru leikskólinn Ösp, leikskólinn Holt, Fellaskóli og frístundaheimilið Vinafell.
  • Vesturbæjarfléttan. Allir leikskólar í Vesturbæ (Drafnarsteinn, Grandaborg, Gullborg, Hagaborg, Mýri, Tjarnarborg/Öldukot, Sæborg, Vesturborg og Sæborg), grunnskólar (Grandaskóli, Melaskóli, Vesturbæjarskóli og Hagaskóli), frístundamiðstöðin Frostaskjól, frístundarheimili (Frostheimar, Selið, Undraland og Skýjaborgir) og félagsmiðstöðin Frosti.

 

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs voru nú í fyrsta sinn veitt samtímis fyrir metnaðarfullt fagstarf í leikskólum, grunnskólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum borgarinnar. Markmið þeirra er að vekja athygli á því gróskumikla skóla- og frístundastarfi sem unnið er af starfsfólki og á starfsstöðum skóla- og frístundasviðs og hvetja til nýbreytni- og þróunarstarfs. Leitað var eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna hjá foreldrum, kennurum, starfsfólki,  skólum og öðrum borgarstofnunum. Alls bárust 59 tilnefningar, m.a.  fyrir sameiginleg verkefni leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva.

Verðlaunagripirnir voru eftir listakonuna Ingibjörgu H. Ágústsdóttur.