Reykjavíkurborg tekur á móti tónlistarmönnum og áhöfninni á Húna við Sjóminjasafnið Víkina fimmtudaginn 11. júlí kl. 12.00. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi sigla með lóðsbátnum til móts við Húna og fylgja honum til hafnar. Sprautað verður úr vatnsbyssum úr lóðsbátnum til að fagna komu Húna og áhafnarinnar til Reykjavíkur með skemmtilegu sjónarspili.
Þegar Húni leggst að bryggju við Sjóminjasafnið mun Harmónikufélag Reykjavíkur leika og Dagur B. Eggertsson flytja stutt ávarp. Að því loknu verður áhöfninni boðið í léttan hádegisverð.
Klukkan 20.00 hefjast tónleikar með áhöfninni á Húna við SjóminjasafniðVíkina. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Landsbjargar.