Nýlega var lokið við frágang á þremur nýjum hundagerðum í Reykjavík sem sett voru upp til að mæta óskum íbúa. Gerðin eru öll um 600 fermetrar að stærð með 1,2 metra hárri girðingu umhverfis og við þau hefur verið komið fyrir bekkjum og ruslastömpum. Hundagerðin voru á verkefnaskrá Betri hverfa í fyrra en þá sendu íbúar inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Á skiltum sem fest eru á gerðin er hvatt er til góðar umgengni og vakin athygli á að hundurinn er ávallt á ábyrgð eiganda og minnt á taumskyldu utan hundagerðis. Hundaeign hefur aukist í Reykjavík og því eðlilegt að íbúar kalli eftir aukinni þjónustu. Í ár verður aftur kallað eftir hugmyndum íbúa vegna verkefna og kosið milli þeirra ef þarf.
Gerðið í neðra Breiðholti er sunnan við Arnarbakka og austan Breiðholtsbrautar; í Laugardal er gerðið staðsett milli Engjavegar og Suðurlandsbrautar og í miðborginni er það við Vatnsmýrarveg rétt hjá Umferðarmiðstöðinni (BSÍ).