Hugum að trjágróðri sem hindrar vegfarendur
Reykjavíkurborg hvetur garðeigendur til að huga að trjágróðri sem hindrar gangandi og hjólandi vegfarendur. Einnig þarf nú á vordögum að klippa gróður sem skyggir á umferðarmerki eða er líklegt að vaxi fyrir þau.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa undanfarið snyrt þann gróður borgarinnar sem mögulegt er að muni skyggja á umferðarmerki þegar hann laufgast. Einnig hafa verið klipptar greinar á borgarlandi sem slúta inn á göngu- og hjólastíga.
Víðast er trjágróður til prýði og ánægju, en þar sem hann sem vex út fyrir lóðarmörk getur hann skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Lóðarhafar eru því hvattir til að sýna samborgurum sínum þá tillitssemi að klippa þann gróður sem vex út fyrir lóðarmörk.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingum á framfæri geta haft samband í síma 411 11 11. Einnig er mögulegt að benda á hvar trjágróður er til trafala með því að færa inn ábendingu á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/borgarland