Hugmyndasamkeppni um skipulag Öskjuhlíðar

Umhverfis– og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA, efnir til hugmyndasamkeppni um skipulag Öskjuhlíðar. Samkeppnin fer fram samkvæmt samkeppnislýsingu, fylgigögnum og samkeppnisreglum Félags íslenskra landslagsarkitekta.

Tilgangur Reykjavíkurborgar með hugmyndasamkeppninni er að fá hugmyndir að framtíðarþróun Öskjuhlíðarsvæðisins sem stuðlar að fjölbreyttri notkun þess og aðlögun að aðliggjandi svæðum. Ekki er ólíklegt að hugmyndasamkeppni þessi getur leitt til að frekari breytinga á skipulagi svæðisins í samvinnu við höfunda verðlaunatillagna.

Samkeppnisform

Samkeppnin er eins þrepa hugmyndasamkeppni þar sem leitað er eftir hugmyndum að heildarskipulagi Öskjuhlíðar.

Þátttökuréttur

Samkeppnin er opin þeim landslagsarkitektum, arkitektum og skipulagsfræðingum sem hlotið hafa löggildingu starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum, nr. 8/1996. Hvatt er til þverfaglegrar teymisvinnu. Nægilegt er að einn aðili í hverju teymi hafi ofangreinda löggildingu.

Verðlaun

Verðlaunafé er samtals 5.000.000 króna. Gert er ráð fyrir eftirfarandi skiptingu verðlaunafjár.

• Fyrstu verðlaun verða 2.000.000 króna með vsk.

• Önnur verðlaun verða 1.250.000 króna með vsk.

• Þriðju verðlaun verða 750.000 króna með vsk.

Einnig er heimilt að kaupa inn athyglisverðar tillögur fyrir samtals allt að 1.000.000 ef ástæða þykir til.

Fyrirspurnafrestur er fyrir miðnætti GMT 18. apríl 2013.

Tillögum skal skilað í Þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, fyrir kl. 16.00 21.maí 2013.

Nánari upplýsingar: www.hugmyndasamkeppni.is