Hraustir krakkar úr Breiðholti og Laugarnesi í úrslit í Skólahreysti

Grunnskólanemar í Breiðholti hafa staðið sig vel í Skólahreysti nú í vor. Breiðholtsskóli var í fyrsta sæti í sínum riði, Árbæjarskóli í öðru og Seljaskóli  í því þriðja. Laugalækjarskóli varð í fyrsta sæti í hinum riðlinum sem grunnskólar í Reykjavík kepptu í  og Austurbæjaskóli hreppti annað sætið.   

Tólf skólar af landinu öllu, þeirra á meðal Breiðholtsskóli og Laugalækjarskóli, munu  keppa til úrslita í Laugardalshöll 2. maí og verður sjónvarpað beint frá keppninni. 

Þessi má geta að hreystibrautir hafa verið settar upp við nokkra skóla í Breiðholti og í næsta nágrenni við Laugalækjarskóla sem auðveldar nemendum þjálfun undir keppnina.

Sjá www.skolahreysti.is.