Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Innköllun af markaði á klettasalati, merkt Bónus og Hollt og gott.
Hollt og Gott ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Klettasalat þar sem neysla á vörunni hefur valdið ofnæmis- og óþolseinkennum hjá nokkrum einstaklingum. Komið hefur í ljós að varan inniheldur jurt af óþekktum uppruna og beðið er greiningar á henni.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Hollt og Gott ehf.
Vöruheiti: Klettasalat.
Framleiðandi: Hollt og Gott ehf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Upprunaland: Ítalía
Nettóþyngd: 75 g.
Best fyrir: 16. og 17. Janúar 2013
Strikanúmer: 5690350038577
Vörumerki: Bónus
Vöruheiti: Klettasalat.
Framleiðandi: Hollt og Gott ehf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Upprunaland: Ítalía
Nettóþyngd: 75 g.
Best fyrir: 16. og 17. Janúar 2013
Strikanúmer: 5690628007724
Dreifing: Verslanir um land allt.
Þeir sem keypt hafa umræddar vörur eru beðnir um að farga þeim eða skila til þeirrar verslunar sem þær voru keyptar í.