Höfuðborgarstofa heldur málþingi um vörumerkjamótun áfangastaða

Menning og listir

""

Dr. Teemu Moilanen er einn helsti sérfræðingur heims í mótun vörumerkis og markaðssetningar fyrir áfangastaði  (e. place/ destination branding) og höfundur bókarinnar How to Brand Nations, Cities and Destinations:  A Planning Book for Place Branding,  er væntanlegur hingað til lands . Hann mun  halda erindi í Hörpu á morgun þriðjudaginn 26. febrúar sem heitir: Cornerstones of Success in City Branding sem útleggst á íslensku,  Grundvöllur árangurs í mótun vörumerkis fyrir borgir. Dr. Moilanen hefur stýrt rannsóknum á mótun vörumerkis og mótað  markaðsstefnu fyrir fjölda borga eins Amsterdam, Barcelona, Berlín, Búdapest, Dubai, Hamborg, Las Vegas, Los Angeles, Munchen, Prag, San Francisco, Sao Paulo, Singapúr, Sydney og Jóhannesarborg svo nokkra séu nefndar.

Philip Kotler, sem er einn virtasti og þekktasti markaðsmaður í heimi, hrósar dr. Moilanen í hástert í nýútkominni bók hans. Kotler segir bókina vera einhverja þá verðmætustu sem gefin hefði verið út í flokki markaðsbókmennta og að engin þjóð, borg eða áfangastaður ætti að fara af stað í stefnumótun fyrir áfangastaði sem vörumerki án þess að kynna sér hana vel.

Hver eru skilaboð áfangastaða?

 

Um þessar mundir er að fara í gang vinna við endurskoðun á vörumerki Reykjavíkur "Reykjavík - Pure Energy" sem hefur verið í notkun í áratug.  Höfuðborgarstofa stendur fyrir málþingi um vörumerkjamótun áfangastaða  (e. destination branding), á morgun þriðjudaginn 26. febrúar í Silfurbergi í Hörpu undir heitinu Hver eru skilaboð áfangastaða? Markmið málþingsins er að efla og styrkja gæði þeirrar vinnu sem fer í endurmat og  uppbyggingu vörumerkisins. Fyrirlestrar verða almenns eðlis og nýtast þeim er starfa við bæði ferðaþjónustu sem og svæðisbundna markaðssetningu á Íslandi s.s. eigendum, stjórnendum, markaðsfólki og öðrum hagsmunaaðilum sem vinna að kynningu og uppbyggingu á vörumerkjum.

 

Heimsóknum  ferðamanna til Íslands hefur fjölgað ár frá ári og nú ber svo við að heimsóknum erlendra ferðamanna  er einnig farið að fjölga verulega  vetrartímann eða á svokallaðri lágönn. Höfuðborgarstofa vonast til að sérþekking þeirra fyrirlesara sem leitað hefur verið til skili sér inn í markvissara markaðstarfi á höfuðborgarsvæðinu í ferðaþjónustu og öðrum útflutningsgreinum.

 

Auk dr. Teemu Moilanen verður Denise Heijmen,  deildarstjóri rannsókna hjá I amsterdam, með framsögu á málþinginu.  Amsterdam hefur náð mjög afar eftirtektaverðum  árangri í mótun síns vörumerkis og hefur heimsóknum ferðamanna til Amsterdam hefur fjölgað verulega. Borgin hefur unnið skipulega í sínu vörumerki í um áratug og samtvinnað sitt innra starf og starf með hagsmunahópum, svo sem ferðaþjónum og í margskonar viðburðahaldi, í þróun vörumerkisins.