Hljóðmælingar á Icelandic Airwaves

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með því að hávaði á samkomustöðum sé innan heilsuverndarmarka svo koma megi í veg fyrir heyrnarskemmdir gesta. Heilbrigðiseftirlitð gerði því hljóðmælingar á tónleikum á tónlistarhátíðinni Icelandic Airwaves föstudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Hávaði á þremur af fjórum stöðum, sem mældir voru, fór yfir viðmiðunarmörk í reglugerð.

Heilbrigðisfulltrúar fóru á fjóra tónleikastaði og gerðu hljóðmælingar með nýjum Brüel & Kjær hljóðmæli sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur festi kaup á en samkomustöðum ber að fara eftir viðmiðunarmörkum sem gefin eru upp í reglugerð 724/2008 um hávaða.

Viðmiðunarmörk fyrir leyfilegan hávaða á samkomustöðum, útiskemmtunum og öðrum stöðum, þar sem fólk dvelur í skamman tíma eru eftirfarandi: Jafngildishljóðstig er 95 dB, hámarkshljóðstig 110 dB og hæsti hljóðtoppur 130 dB. Ef um er að ræða staði sem eru sérstaklega ætlaðir til tónleikahalds er leyfilegt að heimila í starfsleyfi hærra hljóðstig á einstökum viðburðum en þó skal jafngildishljóðstig aldrei fara yfir 102 dB.

Talið er að varanleg heyrnaskemmd geti orðið við einn hljóðtopp (sekúndubrot) yfir 140 dB(C) og jafnvel stutt dvöl (< 1sek.) í hávaða yfir 115 dB getur valdið varanlegum skemmdum.

Bent skal á að desibelskalinn (dB) er lógaritmískur kvarði eins og jarðskjálftamælieiningin Richter (Rh) og ef hávaði eykst um 3 dB tvöfaldast álag á heyrnina.

Niðurstöður mælinga voru að þrír af fjórum stöðum fóru yfir viðmiðunarmörk í reglugerð. Á þeim stöðum sem hávaði fór yfir viðmiðunarmörk var farið fram á að dregið yrði úr hávaða tafarlaust og í kjölfar eftirlits var gerð krafa um að gerðar yrðu ráðstafanir til að hávaði innanhúss verði framvegis ekki yfir leyfilegum mörkum.

Rekstraraðilar tónleikastaða á Airwaves tóku vel í ábendingar og kröfur Heilbrigðiseftirlitsins.